Breyttar takmarkanir vegna Covid-19

október 23, 2020
Featured image for “Breyttar takmarkanir vegna Covid-19”

Þann 20. október tók gildi ný auglýsing sem hefur verið staðfest af heilbrigðisráðherra. Umræddar reglur gilda til og með 10. nóvember 2020. 

Takmörkun á fjölda einstaklinga sem koma saman miðast enn við 20 einstaklinga, hvort sem er í einkarýmum eða í opinberum rýmum. Auk þess er almenn nálægðarmörk nú tveir metrar í stað eins metrar áður.

Eftirfarandi aðgerðir eru í gildi til 10. nóvember:

Skólahald í leik-, grunn- og tónlistaskóla

Skólastarf í öllum leik-, grunn- og tónlistaskólum sveitarfélagsins helst óbreytt. 

Utanaðkomandi heimsóknir verða ekki leyfðar á meðan á þessum takmörkunum stendur nema í samráði við skólastjórnendur og starfsfólk. 

Tveggja metra reglan gildir nú einnig milli starfsfólk skólana.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að leita upplýsinga hjá viðkomandi skólastjóra ef spurningar vakna.

Frístund 

Starfsemi verður með hefðbundnum hætti. 

Tveggja metra reglan gildir nú einnig milli starfsfólk skólana.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að leita upplýsinga hjá viðkomandi forstöðumanni ef spurningar vakna.

Félagsmiðstöðin Óðal

Starfsemi verður með hefðbundnum hætti.

Íþróttamiðstöðvar 

Líkamsræktarsalurinn í Borgarnesi verður lokaður að óbreyttu. Hópatímar verða leyfðir í spinningsal fyrir að hámarki 6 einstaklinga til að tryggja 2 metra fjarlægðarmörkin í samræmi við gilandi sóttvarnarreglur.

Sundlaugin að Kleppjárnsreykjum verður opin fyrir almenning fimmtudaga milli kl. 19:00- 22:00 og á sunnudögum milli kl. 13:00-18:00.

Aldan

Dósamóttakan og endurhæfing verður lokuð fyrir utanaðkomandi gesti. Önnur starfsemi helst óbreytt.

Íbúar geta komið með dósir á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum – talið verður þremur dögum síðar. 

Eins verður hægt að koma með poka sem búið er að flokka og telja og fá þar með greitt samstundis.

Félagsþjónusta aldraða

Einungis 20 einstaklingar mega koma saman í einu. Notast skal við andlitsgrímur sé ekki hægt að tryggja eins metra fjarlægð milli aðila. 

Safnahúsið

Starfsemi verður með hefðbundnum hætti en gætt verður að fjöldatakmörkunum sem miðast við 20 einstaklinga í senn.

Starfsfólk munu gæta þess að sótthreinsa reglulega sameiginlega snerti fleti.

Ráðhúsið

Starfsemi verður með hefðbundnum hætti en íbúar og aðrir gestur eru beðnir um að hringja eða senda tölvupóst þurfi þeir að ná samband við starfsfólk.

Aðrar stofnanir sveitarfélagsins munu loka fyrir utanaðkomandi gesti.

Íbúar Borgarbyggðar sem og aðrir gestir eru beðnir um að lágmarka heimsóknir sínar í stofnanir sveitarfélagsins eins og kostur er. Mælst er til þess að nota þess í stað síma eða tölvupóst þurfi þeir á þjónustu eða upplýsingum að halda. Hér má sjá nánari upplýsingar um netföng starfsfólks og símanúmer í stofnunum sveitarfélagsins.

Borgarbyggð vill minna íbúa á að öflugast vörnin við veirunni er að huga að einstaklingsbundnum smitvörnum. Mikilvægt er að þvo sér um hendurnar reglulega, spritta, halda eins metra fjarlægð og halda sig heima ef einkenni gera vart við sig.

Ef það leikur grunur á smiti skal strax hafa samband við heilsugæsluna í gegnum síma, við netspjall Heilsuveru.is eða við Læknavaktina í síma 1700. Heilbrigðisstarfsfólk ráðleggur ykkur um næstu skref.

Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

 


Share: