Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 11. mars síðastliðinn að taka upp samstarf við Motus um innheimtu gjalda sveitarfélagsins sem ekki greiðast á réttum tíma.
Markmiðið með samstarfinu er að tryggja jafnræði meðal íbúa, halda kostnaði vegna innheimtu vanskilakrafna í lágmarki og tryggja hagkvæmni í rekstri. Framvegis mun því bætast ítrekunargjald á vanskilakröfur í samræmi við upphæð kröfunnar.
Borgarbyggð skorar á þá sem eiga ógreidd gjöld að ganga frá þeim fyrir 5. maí næstkomandi en að þeim tíma liðnum mun Motus annast innheimtu kröfunnar.
Hægt er að greiða kröfur í heimabanka eða hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins og semja um ógreidd gjöld. Netfang sveitarfélagsins er thjonustuver@borgarbyggd.is og símanúmerið 433-7100.