Frá og með 9. nóvember n.k. mun starfsfólk dósamóttökunnar ekki telja samdægurs, heldur þremur dögum eftir afhendingu sendinga. Þessar ráðstafanir eru gerðar í ljósi aðstæðna í samfélaginu og til þess að gæta að sóttvörnum.
Hægt er að koma með dósir mánudaga, þriðjudga og miðvikudaga.
Íbúum er bent á að hægt sé að fá greitt samstundis ef það er búið að telja og flokka (ál/plast og gler sér).
Starfsfólk dósamóttökunnar biður íbúa um að sýna biðlund og virða tveggja metra regluna sem er í gildi. Vegna takmarkana verður einungis hægt að hleypa einum viðskiptavini inn í einu og það er skylda að vera með andlitsgrímu.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.