Breytt fyrirkomulag í dósamóttökunni frá og með 5. ágúst

ágúst 5, 2020
Featured image for “Breytt fyrirkomulag í dósamóttökunni frá og með 5. ágúst”

Frá og með deginum í dag mun starfsfólk dósamóttökunnar ekki telja samdægurs, heldur þremur dögum eftir afhendingu sendinga. Þessar ráðstafanir eru gerðar í ljósi aðstæðna í samfélaginu og til þess að gæta að sóttvörnum.

Íbúum er bent á að hægt sé að fá greitt samstundis ef það er búið að telja og flokka (ál/plast og gler sér).

Starfsfólk dósamóttökunnar biður íbúa um að sýna biðlund og virða tveggja metra regluna sem er í gildi. Vegna takmarkana geta einungis tveir viðskiptavinir komið inn samtímis án þess að sóttvarnarlög séu brotin.

Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Share: