Í ljósi aðstæðna í samfélaginu hefur verið ákveðið að loka sundlauginni á Kleppjárnsreykjum fyrir almenningi frá kl. 08:00 – 16:00 í næstu viku, 19. – 23. október.
Sundlaugin verður opin fyrir almenning á fimmtudaginn n.k. frá kl. 19:00- 22:00 og á sunnudaginn n.k. frá kl. 13:00-18:00.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.