Ákveðið hefur verið að loka Brattagötu frá 28. ágúst – 11. september vegna framkvæmda.
Á meðan á framkvæmdum stendur verður Gunnlaugsgata einstefnugata frá Skúlagötu og út Helgugötu.
Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að sýna aðgát við vinnusvæðið og fylgja merkingum.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Verkefnastjóri hjá Veitum er Helgi Helgason og verkefnastjóri hjá Borgarbyggð er Ragnar Frank. Verktaki er Borgarverk.