,,Stúlka í íslenskri sveit snemma á 7. áratugnum“ verður einkennismynd sýningarinnar. Ljósmynd: Rafn Hafnfjörð. |
Á sýningunni, sem er á vegum Byggðasafns Borgarfjarðar, verður bæði lögð áhersla á ljósmyndir og muni sem tengjast þema sýningarinnar. Fólk er af þessu tilefni beðið um að leita í fórum sínum að myndum úr lífi eða umhverfi barna á ofangreindu tímabili. Myndirnar þurfa að vera athyglisverðar og skýrar og myndefni vel afmarkað. Ennfremur væri áhugi á að vita af munum sem gætu hentað á sýningu sem þessa.
Áhugasamir láti vita í síma 430 7200 eða skrifi Sigrúnu Elíasdóttur munaverði á netfangið munasafn@safnahus.is fyrir 1. apríl n.k.
Upplýsingar um Safnahús Borgarfjarðar.
Safnahús Borgarfjarðar: bókasafn, byggðasafn, listasafn, náttúrugripasafn og skjalasafn.
Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi. s.: 430 7200,
netfang: safnahus@safnahus.is