Borgarnes til fyrirmyndar í öryggi barna og notkun öryggisbelta

október 27, 2021
Featured image for “Borgarnes til fyrirmyndar í öryggi barna og notkun öryggisbelta”

Slysavarnafélagið Landsbjörg og Samgöngustofa gerðu könnun á öryggi barna í bílum við leikskóla árið 2021. Könnunin var gerð við 50 leikskóla í 25 þéttbýliskjörnum víða um land og var búnaður hjá 1.777 börnum kannaður.

Ánægjulegt er að greina frá því að Borgarnes var á meðal þeirra þéttbýliskjarna sem eru til fyrirmyndar í öryggi barna í bílum og notkun öryggisbelta ökumanna. Könnunin var framkvæmd á Uglukletti og Klettaborg og fengu báðir leikskólarnir 100% stig.

Niðurstöður könnunarinnar má lesa í skýrslu Samgöngustofu fyrir 2021. 

 

 

 

 

 


Share: