Borgarbyggð klæðir sig í jólafötin

október 29, 2020
Featured image for “Borgarbyggð klæðir sig í jólafötin”

Undanfarið hefur borið á því að íbúar í Borgarbyggð eru byrjaðir að lýsa upp skammdegið með jólaljósum- og skreytingum.

Borgarbyggð fagnar þessu frumkvæði og hefur ákveðið að slást í för með íbúum með því að setja  jólaljósin upp snemma í ár.

Íbúar eru hvattir til að gera slíkt hið sama og aðstoða sveitarfélagið við að lýsa upp fallega sveitarfélagið okkar.


Share: