
Borgarbyggð óskar eftir að ráða umsjónarmann Hjálmakletts í tímabundið 50% starf. Um er að ræða fjölbreytt starf með sveigjanlegum vinnutíma.
Hjálmaklettur er menningarhús í Borgarnesi sem hýsir Menntaskóla Borgarfjarðar, hljóðver RÚV á Vesturlandi og fleira. Húsið er staðsett að Borgarbraut 54 Borgarnesi.
Við leitum að drífandi og skipulögðum einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti og sýnir frumkvæði í verki
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heldur utan um bókanir á Hjálmakletti
- Umsjón og eftirlit með húsnæði Hjálmakletts og almennum búnaði
- Þjónusta við leigutaka og utanumhald leigusamninga
- Undirbúningur, framkvæmd og frágangur vegna viðburða
- Kallar til þjónustu húsvarða eða verktaka þegar þarf á að halda
- Sér um innheimtu á leigu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Góð tölvu- og tækniþekking
- Góðir skipulagshæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenslukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með: 13. maí 2025. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar má finna hér