Borgarafundur um endurskoðun stjórnarskrárinnar

október 13, 2010
Boðað er til opins borgarafundar um endurskoðun
stjórnarskrárinnar í Háskólanum á Bifröst í dag kl. 13.00.
Til fundarins er boðað af Stjórnlaganefnd og Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Nefndarmenn greina frá áformum um endurskoðun stjórnarskrárinnar, frá þjóðfundi til þjóðarinnar. Fundurinn hefur það að markmiði að sjónarmið íbúa um inntak stjórnarskrárinnar og hvernig samfélag þeir vilja byggja fái hljómgrunn. Allir eru hvattir til að mæta og láta rödd sína heyrast. Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðunni:
www.thjodfundur2010.is
 

Share: