Bjössi – 100 ára minning

janúar 17, 2011

Þann 14. janúar 2011 voru hundrað ár liðin frá fæðingu Björns Hjartar Guðmundssonar (Bjössa) sem smíðaði Bjössaróló. Af því tilefni hefur verið stillt upp í Safnahúsi verkfærum úr eigu Björns, gestabókum frá Bjössaróló auk fróðleiks um Bjössa. Hér má sjá mynd af góðum skrifum í gestabókina sem Bjössi hafði allaf til staðar á rólónum sínum.

Bjössaróló er vel við haldið í dag og er það sveitarfélagið sem annast viðhaldið. Orkuveita Reykjavíkur veitti einnig myndarlegan styrk til viðhalds vallarins í fyrra. Í Safnahúsi er opið frá kl. 13.00 – 18.00 alla virka daga og uppstillingin um heiðursmanninn Bjössa verður til staðar til og með 21. jan. – verið innilega velkomin!

Share: