Bekkjarsáttmálar í Grunnskólanum í Borgarnesi

nóvember 10, 2017
Featured image for “Bekkjarsáttmálar í Grunnskólanum í Borgarnesi”

Uppbyggingarstefnan eða uppeldi til ábyrgðar er höfð að leiðarljósi í öllu starfi Grunnskólans í Borgarnesi. Um  er að ræða aðferð til að efla jákvæð samskipti. Aðferðin byggir á því að ná samstöðu um lífsgildi til að hafa að leiðarljósi og að fylgja þeim síðan eftir með fáum en skýrum reglum. Hún miðar að því að kenna börnum og unglingum sjálfstjórn og sjálfsaga, að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum og læra af mistökum í samskiptum.

Megináhersla er lögð á hegðun og líðan nemenda og að nemendur nái að uppfylla grunnþarfir sínar á jákvæðan hátt. Grunnþarfirnar eru að tilheyra, að hafa stjórn, sjálfstæði, gleði og öryggi.

Uppeldi til ábyrgðar beinir athyglinni fyrst að persónunni sem síðan lítur í eigin barm og skoðar hvaða áhrif hegðun hennar hefur á aðra. Markmiðið er að styrkja einstaklinginn í að vera hann sjálfur frekar en að stjórnast af öðrum. Til að hjálpa börnum inn á þessa braut og fá þau til að skoða eigið gildismat er áhersla lögð á spurningar á borð við: Hvernig viljum við vera og hvað þurfum við að gera til að ná takmarki okkar?

Til að kenna uppbyggingu eru notaðar ýmsar aðferðir. Nemandinn lærir að þekkja grunnþarfir sínar og hvernig þær hafa áhrif á líðan hans. Hann lærir um lífsgildi og finnur sín eigin, gerður er bekkjarsáttmáli og starfsmannasáttmáli. Þá læra nemendur að leysa mál undir leiðsögn kennara og um Lífsvagninn þar sem fjallað er um rökhugsun og þýðingu þess að stjórna sér sjálfur en láta ekki aðra um það. Kennarar fá í hendur ýmiss konar verkfæri sem nýtast til að leysa vandamál og koma í veg fyrir þau.

 


Share: