Basar á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi

nóvember 5, 2009
Hinn árlegi basar Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi verður haldinn laugardaginn 7. nóvember næstkomandi. Húsið opnar kl. 15:00 og verða munir sem unnir eru af heimilisfólkinu til sýnis milli kl. 15:00 og 16:00. Sala á mununum hefst síðan stundvíslega kl. 16:00. Kaffisala verður á staðnum kl. 15:00 – 17:30. Allur ágóði af kaffisölunni rennur í ferðasjóð heimilisfólks. Nemendur úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar koma í heimsókn og leika listir sínar á hljóðfærin. Allir velkomnir.
 

Share: