Fundur var haldinn í Hjálmakletti 5. júní sl. þar kynnt voru hlutverk, leiðarljós, markmið og viðmið fyrir starf frístundaheimila fyrir 6- 9 ára börn sem Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa sett fram, sjá nánar frétt um málið á vefsíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins:
Ragnar S. Þorsteinsson verkefnastjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu kynnti gæðaviðmið fyrir starf frístundaheimila fyrir 6-9 ára börn og Steingerður Kristjánsdóttir frá menntavísindasviði Háskóla Íslands fjallaði stuttlega um helstu rannsóknir á starfi frístundaheimila og mikilvægi þeirra í lífi barna í dag. Meðal viðfangsefna voru hlutverk forstöðumanna frístundaheimila, gildi frjálsa leiksins, óformlegt nám, fagmennska í frístundastarfi, samstarf þvert á faghópa og daglegur rekstur og samvinna milli frístundaheimila.
Á fundinn mættu starfsmenn frístundaheimila og fulltrúar Borgarbyggðar og UMSB.