Í þessari viku mun Borgarbyggð í samstarfi við RKÍ auka þjónustu fyrir aldraða sem þurfa á aðstoð að halda í sveitarfélaginu, sérstaklega þá sem búa í uppsveitum Borgarbyggðar.
Íbúum í póstnúmeri 311 og 320 er bent á að hafa samband við félagsstarf aldraða í síma 840 1525 til þess að fá aðstoð á meðan á þessu ástandi ríkir. Vesturlandsdeild Rauða krossins á Íslandi mun aðstoða með heimsendingar á matvörum, lyfjum og öðrum nauðsynjum.
Íbúum í póstnúmeri 310 er bent á að matvöruverslanir sem og aðrir þjónustuaðilar eru að keyra vörur heim sé þess óskað.
Þau fyrirtæki sem bjóða heimsendingu eru:
– Nettó
– Geirabakarí
– Ljómalind
– Grillhúsið
– Landnámssetrið
– Kræsingar
– FOK
Þessi listi er ekki tæmandi og er þjónustuaðilum bent á að hafa samband við Borgarbyggð sé það að bjóða sambærilega þjónustu, netfang amm@borgarbyggd.is.