Aukin rafræn þjónusta á heimasíðu Borgarbyggðar

janúar 6, 2020
Featured image for “Aukin rafræn þjónusta á heimasíðu Borgarbyggðar”

Ný heimasíða sveitarfélagsins Borgarbyggðar leit dagsins ljós í haust. Heimasíðan er afrakstur undirbúnings og yfirlegu stýrihóps starfsmanna sveitarfélagsins með hliðsjón af ábendingum íbúa og kjörinna fulltrúa. Vel tókst til og almenn ánægja hefur mælst á meðal íbúa. Starfsmenn sveitarfélagsins þakka öllum þeim sem sendu inn ábendingar, þær hafa gert gæfumuninn við vinnslu síðunnar.

Lagt var upp með að einfalda aðgengi að upplýsingum og gera vefsíðuna notendavænni. Vefsíðan er bjartari yfirlitum og snjöll sem felur í sér að hún er hönnuð og sett upp til að aðlaga sig að skjástærðum, hvort sem síðan er opnuð í gegnum hefðbundna tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma.

Nú hefst markviss vinna við að auka rafræna þjónustu á heimasíðu Borgarbyggðar. Af því tilefni er vert að minna á að eftirfarandi aðgerðir er hægt að framkvæma á heimasíðuna borgarbyggd.is:

Panta viðtal hjá starfsmanni Borgarbyggðar

  • Það er gert með því að fara inn á heimasíðuna og smella á hnapp sem nefnist ,,Panta viðtal“. Umsóknarformið er fyllt út og viðkomandi fær staðfestan viðtalstíma í tölvupósti.

Gerast áskrifandi af fréttum með því að skrá sig á póstlista

  • Í hægra horninu fyrir ofan Fréttir og tilkynningar er hnappur sem heitir ,,Áskrift að fréttum“. Viðkomandi fyllir út formið og er þar með áskrifandi af fréttum sem birtast inn á heimasíðu Borgarbyggðar.

Rafrænt umsóknarferli

  • Efst í hægra horninu á síðunni er hnappur sem nefnist ,,Þjónustugátt“. Inn á þessari gátt eru ýmsar rafrænar umsóknir

Setja inn viðburði í viðburðardagatal sveitarfélagsins

  • Boðið er uppá að setja inn viðburði í Viðburðardagatalið. Íbúar eru hvattir til þess að koma viðburðum á framfæri. Auk þess er hægt að senda fréttaskot á vefumsjon@borgarbyggd.is

Skoða útgefna reikninga frá Borgarbyggð

  • Það er gert með því að innskrá sig inn á þjónustugáttina.

Ráðstafa og skoða notkun frístundastyrks Borgarbyggðar

  • Það er gert með því að innskrá sig inn á þjónustugáttina.

Samfélagsmiðlar

  • Sveitarfélagið er á Facebook og hvetur íbúa til þess að líka við síðuna. Vefsvæðið heitir @Borgarbyggd

Vinna við þróun heimasíðunnar mun halda áfram á komandi vikum og mánuðum. Þeir sem vilja koma ábendingum á framfæri er bent á hnappinn „Senda ábendingu“ sem er að finna bæði efst og neðst á síðunni.

Borgarbyggð vonar að íbúar sveitarfélagsins og aðrir velunnarar verði duglegir að nýta sér þessa möguleika á síðunni. Það er von að nýja heimasíðan stuðli að auknu upplýsingaflæði og gegnsærri stjórnsýslu.


Share: