Aukasýningar á Skólavaktinni

mars 24, 2009
Unglingarnir í Nemendafélagi Grunnskóla Borgarness frumsýndu síðastliðinn föstudag í Óðali leikritið “Skólavaktin” en það er frumsamið leikrit um líf og starf í Grunnskólanum í Borgarnesi. Unglingarnir sömdu handritið sjálf og taka þarna sérstaklega til skoðunar ávana og kæki kennara sinna og gera að þeim góðlátlegt grín. Sýningin hefur fallið í góðan jarðveg og vegna fjölda áskorana er efnt til tveggja aukasýninga miðvikudaginn 25. mars og hefjast þær kl. 17.00 og 20.00. sjá www.odal.borgarbyggd.is
 
Miðaverð er 1.500 kr. en 1.000 kr. fyrir börn 16 ára og yngri.
Miðapantanir í síma 437-1287 eftir kl. 14.00
Styrkjum unglingana okkar í starfi sínu!
 

Share: