Auglýsing vegna breytinga á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna Bjarnhóla

júní 13, 2014
Sveitararstjórn Borgarbyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar ásamt umhverfisskýrslu samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í að landnokun við Bjarnhóla í landi Hamars verði breytt úr landbúnaði í sorpförgun og efnistöku samkvæmt uppdráttum og greinargerð dagssettri 8. apríl 2014.
Skipulagssvæðið tekur til 9,8 Ha.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarbyggð frá og með 11. júní til og með 28. júlí athugasemdarfrestur er til sama tíma. Tillagan verður einnig til sýnis á heimasíðu Borgarbyggðar. Sjá hér.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarbyggð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.
 
Lulu Munk Andersen
skipulags- og byggingarfulltrúi
 

Share: