Auglýsing um skipulagslýsingu Litla Hrauns

mars 13, 2012
Gerð hefur verið svokölluð lýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir hluta jarðarinnar Litla-Hrauns í Borgarbyggð.Á fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar Borgarbyggðar þann 6. febrúar 2012 og á fundi sveitarstjórnar þann 16. febrúar 2012 var skipulagslýsingin samþykkt sbr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagslýsingin er nú til kynningar í tvær vikur í samræmi við 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga. Lýsing
Tilefni deiliskipulagsgerðar eru áform um uppbyggingu á jörðinni Litla-Hrauni sem er gamalt lögbýli en verið hefur í eyði. Gert er ráð fyrir að endurnýja gamla húsakostinn á Litla-Hrauni og afmarka að auki tvær lóðir fyrir íbúðarhús, aðra við gamla býlið en hina nokkuð sunnar.
Engin formleg vegtenging er að býlinu og því er gert ráð fyrir vegi yfir Eldborgarhraun og að býlinu, auk vegar sem mun tengja saman nýju íbúðarhúsalóðirnar. Aðkoma að fyrirhugaðri vegtengingu verður frá þjóðvegi 54 og um bæjarhlaðið á Snorrastöðum, sem er næsta jörð austan við Litla-Hraun.
Í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022 er jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði auk þess að hluta til sem hverfisverndarsvæði vegna Eldborgarhrauns en stór hluti eldhraunsins er innan marka jarðarinnar Litla-Hauns. Hraunið fellur undir flokkinn „Hverfisvernd, nútímahraun“, skv. aðalskipulaginu og verða byggingarreitir lóða ekki staðsettir innan þess svæðis í fyrirhuguðu deiliskipulagi. Skv. aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 er heimilt að byggja allt að 4 íbúðarhús á lögbýlum sem eru stærri en 100 ha, en stærð jarðarinnar Litla-Hrauns er 833 ha skv. Fasteignaskrá. Ekkert deiliskipulag er fyrir á þessu svæði.

Skipulagslýsingin er til sýnis á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi, frá 14. – 28. mars 2012 á skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eigi síðar en 28. mars 2012 og skulu þær vera skriflegar.
Eftir kynningu á skipulagslýsingunni verður fjallað um deiliskipulagið og það kynnt samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010.
 
Borgarbyggð í mars 2012
Jökull Helgason
Skipulagsfulltrúi

Share: