Á svið – leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms

febrúar 18, 2009
 
Leikhópur Skallagríms-mynd OHR
Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms frumsýnir leikritið “Á svið” eftir Rick Abbot föstudaginn 20. febrúar næstkomandi í félagsheimilinu Lyngbrekku. Þetta er gamanleikur í þremur þáttum. Leikritið fjallar um leikhóp sem er að setja upp leikritið “Hið fúla fólsku morð” og er óhætt að segja að margt fari úrskeiðis og gangi á ýmsu hjá leikhópi þessum. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson en hann er borgfirðingum að góðu kunnur, hefur áður leikstýrt hjá Skallagrími og fleiri félögum í Borgarfirði og haldið leiklistarnámskeið.
 
Sýningar:
Frumsýning föstudaginn 20.febrúar kl. 20:30

Næstu sýningar verða:
Sunnudaginn 22.febrúar
Fimmtudaginn 26.febrúar
Föstudaginn 27.febrúar
Sunnudaginn 1.mars

Allar sýningarnar hefjast kl. 20:30.
Miðaverð er kr. 2.000 og kr. 1.000 fyrir börn 13 ára og yngri.

Miðapantanir í síma: 615-1233 og 848-9043. Einnig hægt að panta í gegnum netfangið asa_dora@hotmail.com


Share: