Ástríður Guðmundsdóttir ráðin í starf leikskólastjóra Andabæjar á Hvanneyri

desember 21, 2017
Featured image for “Ástríður Guðmundsdóttir ráðin í starf leikskólastjóra Andabæjar á Hvanneyri”

Ástríður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Andabæjar á Hvanneyri. Ástríður er leikskólakennari að mennt. Hún hefur um áratugaskeið starfað sem deildarstjóri við Andabæ, leyst af sem aðstoðarleikskólastjóri og leikskólastjóri. Hún hefur verið farsæl í starfi bæði sem leikskólakennari og stjórnandi, komið að mótun skólanámskrá leikskólans og tekið þátt í fjölmörgum þróunarverkefnum innan skólans. Hún hefur sótt ýmis námskeið í leiðtogafærni og mannauðsstjórnun. Ástríður tekur við starfinu um áramótin. Tveir umsækjendur voru um leikskólastjórastöðuna á Andabæ, en umsóknarfrestur rann út 20. desember.  


Share: