Áskorun um innleiðingu ákvæða Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna í Borgarbyggð

desember 10, 2018
Featured image for “Áskorun um innleiðingu ákvæða Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna í Borgarbyggð”

Nemendur yngsta og miðstigs Kleppjárnsreykjadeildar Grunnskóla Borgarfjarðar hafa unnið að þema árshátíðar um mannréttindi með sérstaka áherslu á réttindi barna. Í undirbúningi árshátíðarinnar kom fram sú hugmynd að skora á sveitarstjórn Borgarbyggðar að innleiða formlega Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Gunnlaugi A. Júlíussyni sveitarstjóra, Halldóru Lóu Þorvaldsdóttur og Lilju B. Ágústsdóttur fulltrúum sveitarstjórnar voru afhent áskorunin við stutta athöfn í matsal Grunnskóla Borgarfjarðar-Kleppjárnsreykjum. Nemendur sungu lagið Imagine eftir John Lennon við íslenskan texta Þórarins Eldjárn, Kristín Eir Hauksdóttir flutti stutt ávarp og að lokum afhenti Soffía S. Isabella Björnsdóttir sveitarstjóra áskorunina.

Gunnlaugur sveitarstjóri þakkaði nemendum kærlega fyrir og vonaðist til að nú yrði farið í markvissa vinnu við að fara yfir hvernig réttindi barna eru tryggð í sveitarfélaginu.


Share: