Árshátíð Grunnskólans í Borgarnesi fer fram fimmtudaginn 30. mars nk. í Hjálmakletti, mennta- og menningarhúsi Borgarbyggðar.
Það verða tvær sýningar, sú fyrsta kl. 16:30 og seinni kl. 18:30.
Þema árshátíðarinnar er ást og munu nemendur skólans túlka það á fjölbreytilegan hátt.
Aðgangseyri er 1000 kr. fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri. Það verður ekki posi á staðnum, ágóðinn rennur í ferðasjóð nemenda.