Leikskólinn Andabær, Hvanneyri – Leikskólakennarar – Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Andabær, Hvanneyri auglýsir eftir leikskólakennurum. Um er að ræða 100% stöðu og 70% stöðu.
Einnig auglýsum við eftir leikskólakennara í 100% stöðu til að leysa af tímabundið starf deildarstjóra.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum.
Helstu verkefni og ábyrgð deildarstjóra:
Meginverkefni: Vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskólabarna. Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn leikskólastjóra.
Menntun og færnikröfur:
- Leikskólakennararéttindi
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
- Færni í mannlegum samskiptum
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Færni í að tjá sig í ræðu og riti
- Góð íslenskukunnátta
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Miðað er við ráðningar í störfin í október 2016 eftir samkomulagi viðkomandi starfsmanns og leikskólastjóra.
Umsóknarfrestur er til 30. september 2016.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Sigurjónsson leikskólastjóri eða Áslaug Ella Gísladóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 433-7170
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist skriflega til leikskólastjóra á netfangið sigurdurs@borgarbyggd.is