Ánægjuvogin – styrkur íþrótta

febrúar 11, 2013
Í kvöld, mánudaginn 11. febrúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi í Hjálmakletti og hefst fundurinn klukkan 20.00. Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort íþróttahreyfingin standist áskoranir nútímasamfélags eða hvort eingöngu sé þjálfað til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður Ánægjuvogarinnar en Ánægjuvogin er könnun sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.
Könnuð var staða íþróttastarfs, ánægja iðkenda, staða áfengis- og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10.bekk.
Þátttaka er ókeypis og öllum heimil.
 
 

Share: