Alþingiskosningar – atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

mars 18, 2009
Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 25.apríl 2009. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin og fer hún fram á skrifstofu sýslumanns að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, virka daga frá
kl.09.00 til 15.00. Einnig verður hægt að kjósa pálmasunnudag 5.apríl og sumardaginn fyrsta þann 23.apríl frá kl.10.00-14.00. Hægt er að kjósa aðra daga samkvæmt nánara samkomulagi við kjörstjóra.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
(fréttatilkynning)
 

Share: