Reglulega berast sveitarfélaginu ábendingar um númerslausar bifreiðar sem standa á almennum bílastæðum eða á götum. Í lok febrúar s.l. límdu starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands á nokkrar slíkar í Borgarnesi og er eigendum gefinn frestur til 8. mars nk. til að bregðast við.
Allar nánari upplýsingar veitir Heilbrigðiseftirlit Vesturlands, tölvupóstur eftirlit@hev.is.
Nánar má lesa um númerslausar bifreiðar og lausamuni og hreinsun lóða hér.