Álagning fasteignagjalda í Borgarbyggð 2016

janúar 20, 2016
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2016. Álagningarseðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri og til fyrirtækja. Vakin er athygli á að allir álagningarseðlar eru aðgengilegir á „mínum síðum“ á netsíðunni www.Island.is. Einnig geta þeir sem þess óska haft samband við skrifstofu Borgarbyggðar og fengið senda álagningarseðla í pappírsformi.
Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti 22. janúar og síðan 15. hvers mánaðar fram í október.
Eindagi er fimmtánda dag næsta mánaðar eftir gjalddaga.
Greiðsluseðlarverða eingöngu sendir til þeirra sem eru 67 ára eða eldri og þeirra sem þegar hafa óskað eftir að fá þá senda til sín.
Einnig geta þeir sem eru orðnir 67 ára eða eldri afþakkað greiðsluseðla.
Vinsamlega hafið samband við skrifstofu Borgarbyggðar ef óskað er breytinga á þessu fyrirkomulagi. Sími á skrifstofu Borgarbyggðar er 433-7100 og netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Ef gjaldendur telja álagninguna ekki rétta er hægt að fara fram á endurálagningu með rökstuddum hætti. Skrifleg beiðni þar um skal berast skrifstofu Borgarbyggðar eigi síðar en mánuði eftir álagningu gjaldanna.
 
Borgarnesi 20. janúar 20
Skrifstofa Borgarbyggðar
 
 

Share: