Að öllu óbreyttu er hluti starfsfólks sveitarfélagsins á leið í verkfall. Áhrifin munu ná til félagsmanna Kjalar sem starfa í íþróttamannvirkjum, leikskólum og í ráðhúsinu.
Ætla má að áhrif verkfalls verði víðtæk og skerða þurfi þjónustu sveitarfélagsins að einhverju leyti. Þó eru einhverjar stofnanir sem þurfa að loka alveg á meðan á verkfalli stendur.
Hér smá sjá yfirlit yfir boðuð verkföll innan Borgarbyggðar:
Íþróttamiðstöðvar:
- Frá laugardeginum 27. maí – 29. maí
- Ótímabundið frá mánudeginum 5. júní
Leikskólar:
- Frá þriðjudeginum 30. maí – 1. júní
- Frá mánudeginum 5. júní – 5. júlí
Misjafnt er milli deilda hversu miklar skerðingar verða, en það ræðst af því í hvaða stéttarfélagi viðkomandi starfsfólk deilda eru í.
Leikskólastjórar hafa sent nánari upplýsingar á foreldra og forráðmenn og þau hvött til að fylgjast með framvindu mála í tölvupósti.
Ráðhús:
- Frá mánudeginum 5. júní – 5. júlí
Það verður skert þjónusta í þjónustuverinu og á fjármáladeildinni. Eru íbúar hvattir til þess að senda tölvupóst á starfsfólk, sjá hér.
Vinnuskóli
- Ótímabundið frá mánudeginum 5. júní
Á heimasíðu Borgarbyggðar verða ávallt uppfærðar upplýsingar um stöðu mála.