Aftur óstaðfestur grunur um gerla í Grábrókarveitu

október 10, 2019
Featured image for “Aftur óstaðfestur grunur um gerla í Grábrókarveitu”

Fréttatilkynning:

 

Í morgun kom aftur upp grunur um gerlamengun í neysluvatni frá vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni. Vatnsbólið þjónar Borgarnesi, Bifröst og Varmalandi auk fjölda sumarhúsa og nokkurra lögbýla í Borgarfirði.

Þótt aðeins sé um grun að ræða mælast Veitur til þess að notendur á þessu svæði sjóði neysluvatn í öryggisskyni fram í miðja næstu viku. Þá verður kominn upp lýsingarbúnaður sem tryggir öryggi vatnsins. Sjóða þarf neysluvatn í að minnsta kosti eina mínútu.

Eftir að grunur var um gerla í vatninu á dögunum var ákveðið að setja upp lýsingarbúnað við vatnsbólið í Grábrókarhrauni og fylgjast daglega með vatnsgæðunum með sýnatöku. Sýnið, sem grunurinn beinist að, var tekið af starfsfólki Veitna og vísbending úr rannsókn á því nú í morgun. Dæmi eru um rangar vísbendingar af slíkum sýnum. Lýsing á vatni gerir örverur óvirkar og eykur þannig gæði vatnsins en hefur að öðru leyti engin áhrif.

Í ljósi þess að stutt er frá því að síðast kom upp grunur af þessu tagi í þessari vatnsveitu og að stutt er í að lýsingarbúnaður verði virkur, ráðleggja Veitur íbúum að sjóða neysluvatn í öryggisskyni þangað til. Það er áætlað um miðja næstu viku og verða frekari upplýsingar gefnar þegar nánari tímasetning liggur fyrir.

Starfsfólk Veitna vinnur nú að því að gera öllum viðskiptavinum viðvart, sérstaklega viðkvæmum notendum.

 


Share: