Afleysingar vegna fæðingarorlofs

desember 21, 2006
Hér með er auglýst eftir tveimur starfsmönnum við Íþróttamiðstöðina Borgarnesi ( karl og kona).

  • Þurfa að geta hafið störf seinni part janúar 2007.
  • Um tímabundna ráðningu er að ræða.
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
  • Starfið er vaktavinna og felst m.a. í baðvörslu, gæslu í íþróttamannvirkinu auk þrifa, afgreiðslu o.fl.
  • Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilnings á íþrótta- og æskulýðsstarfi.
  • Laun samkvæmt kjarasamningum við launarnefnd sveitafélaga.
  • Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnipróf sundstaða.
  • Vinnustaðurinn er reyklaus.

Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Ráðhúss Borgarbyggðar Borgarbraut 14. Nánari upplýsingar gefur íþrótta- og æskulýðsfulltrúi á skrifstofu eða í síma 433-7100. Einnig er hægt að senda umsókn á netfangið indridi@borgarbyggd.is þar sem fram kemur nafn, kennitala, menntun og fyrri störf umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar n.k.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
 
 

Share: