Þetta er í þriðja sinn sem þessir tónleikar eru haldnir á vegum samtakanna. Kynnir á tónleikunum verður Guðrún Jónsdóttir 
Eftirtaldir kórar koma fram:
Kór Menntaskóla Borgarfjarðar, Kór Saurbæjarprestakalls, Kór Borgarnesskirkju, Samkór Mýramanna, Freyjukórinn, Gleðigjafar(kór eldri borgara),  Kór Stafholtskirkju Karlakórinn Söngbræður og Reykholtskórinn. 
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. 
Stjórnendur kóranna eru:
Viðar Guðmundsson og Zsuzsanna Budai
Kórarnir syngja  tvö lög hver og að lokum syngja þeir saman tvö lög. Eftir tónleikana verður að vanda boðið upp á veitingar í safnaðarsal kirkjunna. Tónleikarnir eru haldnir í Samstarfi við Reykholtskirkju- Snorrastofu og  með tilstyrk ýmissa aðila í héraði. 
Styrktaraðilar að þessu sinni eru: Sjóvá í Borgarnesi,
Kvenfélag Hvítársíðu, Íbúinn og Skessuhorn .
