Aðalfundur Menningarráðs Vesturlands verður haldinn í Klifi í Ólafsvík á morgun, 11. apríl 2007. Fundurinn hefst kl. 14.00 og að loknum aðalfundarstörfum flytur Ágúst Einarsson rektor háskólans á Bifröst erindi sem nefnist: Menning – tækifæri Vesturlands í nýrri atvinnuháttarbyltingu.
Dagskrá:
Kl. 14.00
- Aðalfundur settur. Helga Halldórsdóttir formaður Menningarráðs.
- Starfsmenn aðalfundar skipaðir.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi á liðnu starfsári. Helga Halldórsdóttir og Elísabet Haraldsdóttir.
- Ársreikningur ráðsins fyrir liðið ár lagður fram.
- Tilnefning í stjórn og varastjórn, og kosning endurskoðenda. ( Sjá grein 6. í stofnsamþykktum og viðauka.)
- Fjárhagsáætlun 2007.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Önnur mál.
Undirritun samninga Menningarráðs við Tónlistarskólana, UKV og Skessuhorn.
Tónlistaratriði úr Snæfellsbæ.
Kl. 15.00
Rektor háskólans á Bifröst Ágúst Einarsson heldur erindi Menning- tækifæri Vesturlands í nýrri atvinnuháttarbyltingu
Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Snæfellsbæjar.
Fundi slitið kl. 16.00