60 ára afmæli Varmalandsdeildar Grunnskóla Borgarfjarðar.

apríl 19, 2016
Featured image for “60 ára afmæli Varmalandsdeildar Grunnskóla Borgarfjarðar.”

Í tilefni að því að 60 ár eru liðin frá stofnun Barnaskólans Varmalandi sem nú heitir Grunnskóli Borgarfjarðar Varmalandsdeild verður opið hús í skólanum mánudaginn 25. apríl nk. frá kl. 9.30 til 11.30. Hægt verður að ganga um svæðið, fylgjast með hefðbundnu skólastarfi og skoða breytingar sem gerðar hafa verið á húsnæðinu.
Teknar verða fram eldri skólabækur og munir sem gaman er að skoða og boðið verður upp á veitingar.
Hvetjum sérstaklega fyrrverandi nemendur til að koma í heimsókn.


Share: