15 sóttu um starf sveitarstjóra Borgarbyggðar

janúar 6, 2020
Featured image for “15 sóttu um starf sveitarstjóra Borgarbyggðar”

Alls sóttu 18 aðilar um starf sveitarstjóra Borgarbyggðar en starfið var auglýst í desember s.l. og rann umsóknarfrestur út þann 28. desember. Þrír drógu umsókn sína til baka.

12 karlar og 3 konur sækjast eftir starfinu og á næstu dögum verður farið yfir umsóknirnar og ákveðið hvaða umsækjendur verða kallaðir í viðtöl.

Það er fyrirtækið Intellecta sem annast ráðningarferlið í samstarfi við sveitarstjórn Borgarbyggðar.

Umsækjendur um starfið eru í stafrófsröð:

Aðalsteinn Júlíus Magnússon, Framkvæmdastjóri

Árni Hjörleifsson, Oddviti

Ásgeir Sæmundsson, Rafvirki

Bjarni Ó Halldórsson, Rekstrarhagfræðingur

Einar Örn Thorlacius, Lögfræðingur

Eva Hlín Alfreðsdóttir, Verkefnastjóri

Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, Forstöðumaður

Guðni Halldórsson, Framkvæmdastjóri

Hafdís Vala Freysdóttir, Forstöðumaður

Jón Fannar Guðmundsson, Sérfræðingur

Ólafur Kjartansson, Viðskiptastjóri

Sæmundur Ásgeirsson, Verkstjóri

Þorsteinn Valur Baldvinsson, Jarðvinnuverkstjóri

Þórdís Sif Sigurðardóttir, Sviðsstjóri

Þórólfur Árnason, Verkfræðingur

 


Share: