Undanfarið hefur verið mikil umræða um refaveiði í Borgarbyggð líkt og í ýmsum öðrum sveitarfélögum. Í kjölfar þessa kallaði byggðarráð eftir upplýsingum frá umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa um veiðarnar. Í samantekt umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa sem lögð var fram á fundi byggðarráðs nýverið má glöggt sjá að frá árinu 2001 fram til ársins 2009 er töluverð aukning á fjölda refa sem veiddir …
Kettlingar í óskilum
Tveir kettlingar voru handsamaðir á afleggjaranum að Rauðanesi miðvikudaginn 13. júlí. Þetta eru tvær læður ca. 6 – 8 vikna gamlar Eigandinn er vinsamlegast beðinn að hafa samband við gæludýraeftirlitsmann norðan Hvítár, Huldu Geirsdóttur í síma 861-3371
Umhverfisviðurkenningar 2011
Frá umhverfis- og skipulagsnefnd: Auglýst eftir tilnefningum frá íbúum Borgarbyggðar Umhverfis- og skipulagsnefnd Borgarbyggðar í samstarfi við Landbúnaðarnefnd hefur ákveðið að veita umhverfisviðurkenningar í Borgarbyggð í eftirfarandi fjórum flokkum: 1. Besti frágangur lóðar við íbúðarhúsnæði. 2. Besti frágangur lóðar við atvinnuhúsnæði. 3. Myndarlegasta bændabýlið. 4. Sérstök viðurkenning umhverfis- og skipulagsnefndar. Vinsamlega sendið tilnefningar til Bjargar Gunnarsdóttur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa, …
Frá leikskólanum Hnoðrabóli
LEIKSKÓLAKENNARA OG MATRÁÐ VANTAR Á LEIKSKÓLANN HNOÐRABÓL Í REYKHOLTSDAL Við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal eru laus staða leikskólakennara frá og með 8. ágúst n.k. Um er að ræða fulla stöðu leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða starfsmenn með háskólapróf eða aðra uppeldismenntun og/eða reynslu. Einnig er laus 60% staða matráðs við skólann frá og með 8. …
Starfsfólk í búsetuþjónustu
Starfsfólk óskast til starfa í búsetuþjónustu fatlaðra í Borgarnesi. Starfið felst í að aðstoða fólk með fötlun, í daglegu lífi, inni á heimilum þess og úti í samfélaginu. Starfið er vaktavinna. Unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum. Umsækjandi þarf að vera eldri en 20 ára og vera með ökuréttindi. Laun samkvæmt kjarasamningum. Nánari upplýsingar gefur Hulda Birgisdóttir í síma …
Úttekt á starfsemi Grunnskólans í Borgarnesi
Nýverið lét mennta- og menningarráðuneytið gera úttekt á starfsemi Grunnskólans í Borgarnesi, en skólinn var í hópi nokkurra grunnskóla sem gerð var úttekt á þetta árið. Úttektin var unnin af þeim Halldóru Kristínu Magnúsdóttur og Unnari Þór Böðvarssyni. Hún er unnin í samræmi við lög um grunnskóla nr. 91/2008 og er markmið hennar að leggja mat á starfsemi skólans með …
Tónlistarkennarar á leið til Póllands
Kennarar Tónlistarskóla Borgarfjarðar halda til Póllands laugardaginn 9. júlí. Þeir munu halda tónleika á listahátíð í bænum Lanckorona mánudaginn 11. júlí. Þar verða flutt íslensk þjóðlög, sönglög og verk eftir fjóra af kennurum skólans. Einnig munu kennararnir fara á námskeið og fyrirlestra tengda menningu. Þetta er menningartengt samstarf milli Íslands og Póllands, styrkt af Evrópska efnahagssvæðinu. Í júní komu nokkrir …
Draumurinn í Valfelli
Draumurinn, gleðileikur með söng og dansi byggður á verki Shakespeares, Draumi á Jónsmessunótt verður frumsýndur föstudaginn 8.júlí í félagsheimilinu Valfelli. Listasmiðjan bak við eyrað frumsýnir verkið í samstarfi við Tónlistarskóla Borgarbyggðar, Dansskóla Evu Karenar og sveitarfélagið Borgarbyggð. Það er Ása Hlín Svavarsdóttir leikstjóri og mastersnemi í við Listaháskóla íslands sem gerði leikgerðina og setur verkið á svið. Þátttakendur í sýningunni …
Umhverfisráðherra staðfestir aðalskipulag Borgarbyggðar
Miðvikudaginn 29. júní undirritaði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra nýtt aðalskipulag Borgarbyggðar 2010 – 2022. Langþráð bið er á enda þar sem um er að ræða tímamóta stefnumörkun í landnýtingu enda fyrsta aðalskipulag sem nær yfir allt sveitarfélagið sem samansett er úr 13 sveitarfélögum og nær yfir 5% af Íslandi. Í Borgarbyggð voru tvö svæðisskipulög í gildi og aðalskipulög fyrir Borgarnes, Hvítársíðu …
Sumarhugleiðing til foreldra
Sumarið er tíminn! Sumarhugleiðing til foreldra unglinga í Borgarbyggð Samstarfshópur um forvarnir í Borgarbyggð og SAMAN hópurinn sendir ykkur eftirfarandi hugleiðingu til að minna á mikilvægi samveru foreldra og unglinga. Allan veturinn hlökkum við til sumarsins sem er tími birtu, gleði og frelsis. Flestir unglingarnir okkar blómstra og finnst þeir vera færir í flestan sjó. En frelsið getur verið vandmeðfarið. …