Tilkynning frá Veitum vegna framkvæmda í Kvíaholti

Vegna tengingar parhúss við Kvíaholt munu Veitur loka seinni gatnamótum Kvíaholts og Stöðulsholts. Lokunin er fyrirhuguð þriðjudaginn 28. apríl 2026 og áætlað er að gatnamótin opni aftur 30. apríl 2026 (með fyrirvara um breytingar). Við biðjum vegfarendur og íbúa að sýna þolinmæði og aðgát þegar farið er um svæðið meðan á framkvæmdum stendur.

Lagfæringar á stíg við sjávarsíðu í Kveldúlfsgötu

Sigur-garðar munu á næstu dögum fara í lagfæringar á stíg við sjávarsíðu í Kveldúlfsgötu sem hluta af fyrirhuguðum endurbótum á göngustígnum. Í ljósi aðstæðna verður steypumulningur fjarlægður og stígurinn endurskoðaður með tilliti til umhverfis, aðstæðna á svæðinu og upplifunar íbúa, sem og gangandi og hjólandi vegfarenda. Við þökkum kærlega fyrir ábendinguna og góða umræðu.

Ráðning skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi

Sólrún Halla Bjarnadóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi. Sólrún Halla er með M.Ed í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands, B.Ed í íþrótta- og heilsufræðum og B.Ed í leikskólakennarafræðum. Auk þess hefur hún lokið viðbótardiplómu á meistarastigi í menntastjórnun og matsfræði og aðra diplómu á meistarastigi í hagnýtri stærðfræði í náms- og kennslufræðum. Einnig er hún …

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 2026

Kjörskrá vegna sameiginlegra sveitarstjórnarkosninga Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem fer fram þann 16. maí 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2. Athugasemdir við kjörskrá skal senda beint til Þjóðskrár. Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá hér Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á …

Stóri plokkdagurinn og upphaf mannræktarviku

Stóri plokkdagurinn fer fram næsta sunnudag og eru íbúar hvattir til að taka þátt og plokka í sínu nærumhverfi. Sama dag hefst einnig Mannræktarvika í Borgarbyggð, sem stendur frá 26. apríl til 3. maí. Markmið vikunnar er að efla samkennd, jákvæðni, gleði og virðingu í samfélaginu og hvetja okkur til að sýna hvert öðru hlýju í daglegu lífi. Félagar í …

Mannræktarvika Borgarbyggðar 26. apríl – 3. maí

Dagana 26. apríl – 3. maí verður haldin Mannræktarvika í Borgarbyggð. Markmið vikunnar er að efla samkennd, jákvæðni, gleði og virðingu í samfélaginu okkar og hvetja til þess að við sýnum hvert öðru hlýju í daglegu lífi. Hugmyndin er einföld en getur verið áhrifarík: að framkvæma lítil góðverk sem styrkja samfélagið – og það þarf ekki að kosta neitt. Með …

Vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026

Frétt af vef Markaðsstofu Vesturlands: Almyrkvi á sólu verður 12. ágúst 2026 og mun sjást frá öllum sveitarfélögum á Vesturlandi – þó mislengi eftir svæðum. Gera má ráð fyrir verulegri aukningu gesta og mikilli umferð á svæðinu, bæði á sólmyrkvadaginn og dagana fyrir og eftir atburðinn. Undirbúningur vegna þessa atburðar er í gangi í samstarfi sveitarfélaga, viðbragðsaðila og annarra hagaðila. …

Söfnun á rúlluplasti að hefjast aftur

Næsta söfnun á rúlluplasti stendur þessa vikuna 20. apríl-25. apríl og fram í næstu viku. Samkvæmt fyrirkomulagi er byrjað að safna vestast á Mýrunum, Hraunhreppi og Kolbeinsstaðarhreppi, að því loknu er safnað upp í Norðurárdal og tökum svo dalina koll af kolli niður að Andakíl. Við viljum minna á að rúlluplastið þarf að vera í böggum: hvítt sér, svart sér …

Ragnar Heiðar nýr umsjónarmaður Hjálmakletts

Ragnar Heiðar Sigtryggsson hefur verið ráðinn sem umsjónarmaður Hjálmakletts. Ragnar er með B.cs í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði og hefur tekið að sér að útbúa kynningarefni fyrir hin ýmsu fyrirtæki. Þá starfaði hann á fjármála- og stjórnýslusviði hjá Ísafjarðarbæ á árunum 2016 – 2019 og hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga á árunum 2019-2022. Ragnar hefur töluverða reynslu af viðburðastjórnun og rekstri …