Niðurstaða frumkvæðisathugunar Gæða- og eftirlitsstofnunar (GEV) á barnaverndarþjónusta Borgarbyggðar liggur nú fyrir. Athugunin hófst í mars 2023 og tók til tímabilsins frá janúar 2022 til apríl 2023. Tilefnið var fjöldi og alvarleiki erinda og kvartana sem GEV hafði borist. Niðurstaða GEV er að töluverður og alvarlegur misbrestur hafi orðið á vinnslu mála hjá barnaverndarþjónustu Borgarbyggðar á tímabilinu. Fram kemur að …
Borgarbyggð mótar nýja þjónustustefnu
Árið 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði inn í sveitarstjórnalög nr. 138/2011. Um er að ræða 130. gr. a og er þar fjallað um skyldu til þess að móta heildarstefnu til eins ár og í næstu þrjú ár þar á eftir, um það hvaða þjónustustigi viðkomandi sveitarfélag hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum innan sveitarfélagsins. Markmið lagabreytinganna …
Ætlar þú að senda umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða?
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er opin fyrir umsóknir til 15.október n.k. – sjá nánar á vef Ferðamálastofu Áhersla ráðherra í úthlutun fyrir framkvæmdaárið 2025 er: “ minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils“ auk hefðbundinna áherslna sem tilgreindar eru í lögum um sjóðinn s.s. verndun náttúru, öryggi ferðafólks og uppbyggingu innviða – en einnig er áhersla á það að viðkomandi verkefni sem sótt er um styrk fyrir sé tilgreint í áfangastaðaáætlun …
Nýsköpun í vestri: Frumkvöðladagur á Vesturlandi 2024
Markmið „Nýsköpunar í vestri“ er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu. Dagskráin er blanda af fræðslu, reynslusögum og tengslamyndun. Þátttakendur munu læra af reyndum frumkvöðlum og kynnast nýju fólki. Hluti af dagskránni er úthlutun atvinnu- og nýsköpunarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og gefst þátttakendum tækifæri til að spjalla við …
Borgarbraut 63
Vakin er athygli á því að tvær sprengingar verða næstu daga við Borgarbraut 63, sú fyrri kl. 11:30 og sú seinni kl. 15:00. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Dagskrá Be Active í Borgarbyggð
Íþróttavika Evrópu er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum og Borgarbyggð tekur að sjálfsögðu fullan þátt í samstarfi við Ungmennasamband Borgarfjarðar. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Sjá dagskrá vikunnar hér
Akstursþjónusta fyrir Borgarbyggð
Consensa fyrir hönd sveitarfélagsins Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í akstursþjónustu fyrir fatlaða og aldraða í Borgarbyggð samkvæmt skilmálum útboðsins. Um er að ræða samþætta akstursþjónustu fyrir þá sem eiga rétt á akstursþjónustu samkvæmt reglum sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvefnum á vefslóðinni: https://tendsign.com/doc.aspx?MeFormsNoticeId=30722&GoTo=Tender Hafa skal í huga að tilboðfrestir geta tekið breytingum og eru …
Ertu búin að skrá þig á íbúaþingið?
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir íbúaþingi miðvikudaginn 18. september um endurskoðun Sóknaráætlunar Vesturlands. Þingið fer fram í Hjálmakletti í Borgarnesi og hefst kl. 16 og mun standa til kl.18:00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér!
Ljósastaurar við Mávaklett og Fálkaklett
Kæru íbúar, Vegna bilunar sem upp kom fyrir rúmri viku hafa ljósastaurar við Mávaklett og Fálkaklett verið óvirkir. Því miður reyndist um að ræða nokkuð flókna bilun en útleiðsla virtist einhvers staðar eiga sér stað og bilanaleit tók lengri tíma en vonast var eftir. Vonandi tekst að ljúka bilanaleit í dag og í framhaldinu ráðast í viðgerð. Þökkum íbúum fyrir …
Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð.
Borgarbyggð styrkir tómstundaiðkun barna og ungmenna á aldrinum 0-18 ára sem eiga lögheimili í Borgarbyggð. Börn 6-18 ára eiga rétt á 40.000 kr á ári en börn 0-5 ára eiga rétt á 14.000 krónum. Markmið framlagsins er að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í skipulögðu íþrótta – lista og tómstundastarfi og að öll börn 0-18 ára geta …