Kæru íbúar Framkvæmdum Borgarbyggðar og Veitna í Sæunnargötu miðar vel áfram og gert er ráð fyrir að þessum áfanga ljúki fyrir lok nóvember. Þriðja og síðasta áfanga hefur verið frestað til vors þar sem vetrarveður hefur neikvæð áhrif á endingartíma lagna í opnum skurði. Við munum láta vita áður en við hefjum vinnu að nýju í vor. Veitur og Borgarbyggð …
Þjónustukönnun Byggðastofnunar – lokadagur 5. nóvember
Kæri íbúi Hvaða þjónusta skiptir þig máli í þinni heimabyggð? Taktu þátt í Þjónustukönnun Byggðastofnunar, þín þátttaka er mikilvæg! Smelltu hér til að taka þátt: www.maskina.is/byggdastofnun Sjá nánari upplýsingar um þjónustukönnun ———————————————————- Dear resident What services are important to you in your local community? Your participation in the Icelandic Regional Development Institute’s service survey is important! Open survey: www.maskina.is/byggdastofnun Further …
Gott að eldast í Borgarbyggð
Opið hús fyrir íbúa Borgarbyggðar verður haldið í hátíðarsal Brákarhlíðar þriðjudaginn 5. nóvember kl. 16:00. Dagskrá: Sveitarstjóri býður fólk velkomið Gott að eldast og tengiráðgjöf – Líf Lárusdóttur verkefnastjóra SSV „Það er pláss fyrir alla“. Vitundarvakning Félags og vinnumarkaðsráðuneytisins um félagslega einangrun. Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur og Svavar Knútur söngvaskáld. Að fundi loknum verður samvera og kaffiveitingar. Öll velkomin!
Syndum – Landsátak í sundi 2024
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samstarfi við Sundsamband Íslands, kynnir landsátakið Syndum frá 1. til 30. nóvember 2024! Setning átaksins verður föstudaginn 1. nóvember í Ásvallalaug. Taktu þátt í landsátaki í sundi og hreyfðu þig fyrir heilsuna! Markmiðið með Syndum er að hvetja alla landsmenn til að bæta heilsu sína með reglulegri hreyfingu, sérstaklega með sundi. Á síðasta ári syntu …
Kynning á umhverfismatsskýrslu fyrir Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet kynnir umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðrar 220 kV raflínu frá Klafastaðum í Hvalfirði að Holtavörðuheiði. Formleg kynning stendur yfir frá 1. október til 29. nóvember 2024. Opið hús – Kynning á umhverfismatsskýrslunni: Hótel Laxárbakka, Hvalfjarðarsveit – 23. október, 19:30-21:30 Hótel Hamri, Borgarbyggð – 24. október, 19:30-21:30 Nauthóli, Reykjavík – 29. október, 19:30-21:30 Við hvetjum alla til að mæta og ræða við …
Bjartur lífsstíll – Söfnun upplýsinga um hreyfiúrræði fyrir 60+ í Borgarbyggð
Bjartur lífsstíll er samstarfsverkefni ÍSÍ og LEB, styrkt af Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Markmið verkefnisins er að birta hreyfiúrræði fyrir fólk 60 ára og eldra á einum stað á vefsíðunni www.island.is, sem er ein helsta upplýsingaveita opinberra aðila á Íslandi. Sveitarfélög bera ábyrgð á að tryggja að upplýsingar um hreyfiúrræði fyrir eldri borgara séu uppfærðar í samvinnu …
Grábrókarveita
Mánudaginn 21 október var byrjað að skola út aðveituæð Grábrókarveitu sem liggur fá dælustöðinni í Grábrókarhrauni og niður að Borgarnes. Þessa útskolun er gerð að jafnaði á sex mánaða fresti og er það gert til að skola grugg úr aðveitulöglögninni. Þetta er gert til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er á til viðskiptavina okkar. Búast má við að …
Tal- og málörvun
Vefsíðan Tal- og málörvun er hluti af meistaraverkefni Þorbjargar Sögu í talmeinafræði við Háskóla Íslands. Vefsíðan er ætluð foreldrum og öðrum sem vilja fræðast um tal- og málþroska barna. Síðan er sérstaklega hugsuð fyrir foreldra þriggja ára barna sem hafa svarað LANIS skimunarlistanum. Vefsíðan byggir meðal annars á rannsóknum um tal- og málörvun leikskólabarna. Á síðunni er að finna upplýsingar …
Að tilheyra / Fitting in
Lýðheilsa hinsegin ungmenna á landsbyggðinni Hvernig byggjum við upp öruggara skólaumhverfi fyrir hinsegin ungmenna á landsbyggðinni? Hvernig getum við bætt skólaumhverfið unnið gegn jaðarsetningu og stuðlað að meiri inngildingu hinsegin nemenda? Hvernig getum við aukið þann stuðning sem hinsegin nemendur og fjölskyldur þurfa á að halda í skólanum landsbyggðinni? Félagið Hinsegin lífsgæði efnir til fundar ætluðum kennurum og öðrum áhugasömum …
Borgarbyggð boðar til fundar með atvinnurekendum!
Þann 1. nóvember næstkomandi taka gildi nýir kjarasamningar Visku, Kjalar og Stéttafélags Vesturlands við Samband íslenskra sveitarfélaga, munu þessar breytingar hafa veruleg áhrif á vinnuumhverfið í sveitarfélaginu. Langstærsta breytingin felst í styttingu vinnuvikunnar úr 40 tímum í 36 tíma, munu þessar breytingar m.a. koma til með að hafa áhrif á fjölmarga starfsmenn í skólum og leikskólum. Borgarbyggð stendur frammi fyrir …