Framkvæmdastyrkir til íþrótta- og tómstundafélaga í Borgarbyggð

Borgarbyggð auglýsir til umsóknar framkvæmdastyrki. Styrkjunum er ætlað styðja við einstakar framkvæmdir hjá íþrótta- og tómstundafélögum innan Borgarbyggðar til uppbyggingar eða viðhalds á fasteignum eða athafnasvæði félagsins sem Borgarbyggð kemur ekki að rekstri að öðru leyti og er í eigu félaga eða félagasamtaka innan Borgarbyggðar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að um íþrótta-, ungmenna- eða tómstundafélag innan Borgarbyggðar sé að ræða. …

253. Fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar

253. fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar verður haldinn í Hjálmakletti, þann 8. maí nk., kl.16:00 Hér má sjá dagskrá fundarins Hægt er að fylgjast með fundinum í streymi hér  

Dagbók sveitarstjóra

Vorið að hellast yfir okkur þessa dagana. Í lok maí stefni ég til Skotlands með góðum vinum til að ganga á Ben Nevis. Smá kvíði í gangi, enda ég litlu standi eftir veturinn. Slatti af kílóum bæst við og ég hef aldrei verið mýkri. Það mun reyna á viljastyrkinn. En jæja, við Þurý og Týra tókum tvær léttar fjallgöngur um …

Barnamenningarhátíðin OK dagana 2.- 4.maí 2024

Föstudagur 3.maí: Mannslíkaminn – Safnahús kl.10 Nemendur í 6. bekk kynna/sýna afrakstur samþætts verkefnis í náttúrufræði og list- og verkgreinum um mannslíkamann Ljós og litir – Safnahús Verk eftir nemendur grunnskóla GBF prýða veggi Safnahús meðan hátíðin stendur. Oliver – Frumsýning Söngleikjadeildar tónlistarskólans í Óðali kl.18 – Miðasala við innganginn 1000kr/500kr grunnsk.börn – ekki posi Laugardagur 4.maí Frozen – Safnahús …

Friðlýsing Borgarneskirkju

Friðlýsing Borgarneskirkju, fer fram þann 9. maí 2024 Borgarneskirkja, messa kl. 11:00 Borgarneskirkja, kl. 14:00 Ávarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar Ávarp frá Séra Þorbirni Hlyni Árnasyni, fyrrv. sóknarpresti. Erindi frá Pétri H. Ármannssyni og Birni Jóni Björnssyni um Halldór H. Jónsson, arkitekt kirkjunnar, og kirkjubygginguna. Undirritun ráðherra við hátíðlegt tækifæri í kirkjunni (eða fyrir utan hana ef veður …

Oliver

Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar heldur upp á tuttugu ára afmæli deildarinnar með því að setja upp söngleikinn Oliver eftir Lionel Bart og verða sýningar í byrjun maí. Íslensk þýðing er eftir Flosa Ólafsson. Nemendur í söngleikjadeildinni á vorönninni eru tuttugu og fjórir á aldrinum 7-12 ára. Theodóra Þorsteinsdóttir og Hanna Ágústa Olgeirsdóttir setja upp sýninguna, stýra tónlist og leik, en Jónína …

Opnað hefur verið fyrir umsóknir öndvegisstyrkja Uppbyggingarsjóðs Vesturlands

Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Vesturlands hefur ákveðið að veita alls 20 m.kr. til áhugaverðra verkefna á Vesturlandi. Viðkomandi verkefni geta verið á hugmyndastigi eða lengra komin. Þau þurfa að hafa skírskotun til svæðisins og nýsköpunar í atvinnulífi og menningu þess. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn úthlutar reglulega styrkjum til nýsköpunar í …

Fræðsla fyrir foreldra um netöryggi SAFT

Börn og ungmenni þurfa leiðsögn hvernig þau eiga fóta sig í heimi samskipta á netinu. Hlutverk foreldra er mikilvægt í stafrænu uppeldi og foreldrar verða að kunna að ræða við börn sín um það sem fer fram á netinu, bæði það jákvæða og neikvæða. Hvenær: 30.apríl 2024 Tímasetning: kl 17:00 Staðsetning: Grunnskólinn í Borgarnesi Streymt á Teams

Lokahnykkur framkvæmda á Borgarbraut

Nú líður að lokahnykk framkvæmda á Borgarbraut í Borgarnesi. Fljótlega hefst frágangur á yfirborði með malbikun götunnar og hellulögn á gangstétt. Ef veður helst hagstætt þá verður Borgarbrautinni lokað fyrir umferð mánudaginn 6. maí til að hægt sé að undirbúa hana fyrir malbikun. Stefnt er að malbikun 13.-15. maí og þegar því er lokið verður hægt að opna fyrir umferð …

Stofnun Barnaverndarþjónustu Vesturlands

Á síðasta ári áttu sér stað breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002. Fólust þær m.a. í því að barnaverndarnefndir voru lagðar niður en í þeirra stað tóku til starfa Umdæmisráð. Einnig voru sett inn skilyrði um lágmarksíbúafjölda, þ.e. að hver barnaverndarþjónusta þyrfti að telja 6000 íbúa. Því var lögð rík áhersla á að minni sveitarfélög myndu standa saman að sameiginlegri barnaverndarþjónustu. …