Bæjarstjórnarfundur

Bæjarstjórnarfundur verður haldinn fimmtudaginn 18. janúar 2001 að Borgarbraut 11 og hefst kl. 16,oo. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs 2001 ( seinni umræða ). 2. Fjárhagsáætlun Hitaveitu Borgarness 2001 ( seinni umræða ). 3. Fjárhagsáætlun framkvæmdasjóðs 2001 ( seinni umræða ). 4. Fjárhagsáætlun félagslegra íbúða 2001 (seinni umræða). 5. Þriggja ára áætlun bæjarsjóðs 2002 – 2004 (fyrri umræða). 6. Tillögur um …

Bíó í 70 ár

Miðvikudaginn 10. janúar s.l. var tekin í notkun ný kvikmyndasýningavél í Félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi. Þar með verður bíómenning áfram í Borgarnesi eins og verið hefur s.l. 70 ár. Það var glatt á hjalla þegar ný bíósýningarvél var tekin í notkun s.l. miðvikudag í félagsmiðstöðinni að viðstöddu fjölmenni. Um þessar mundir eru 70 ár frá því fyrst voru sýndar kvikmyndir …

Viðbygging við Grunnskólann í Borgarnesi

Borgarbyggð hefur gengið frá samningi við verktakafyrirtækið Sólfell ehf um að reisa 660 fm byggingu við Grunnskólann í Borgarnesi. Verksamningurinn er gerður á grundvelli útboðs og nemur samningsfjárhæð 97,2 milljónum króna. Verktaki semur við undirverktaka um hluta af framkvæmdinni og er stærsti undirverktaki Loftorka í Borgarnesi sem tekur að sér að steypa einingar í húsið og reisa þær. Byggingartíminn er …

Samið um tryggingar

Borgarbyggð hefur skrifað undir samning við Sjóvá-Almennar tryggingar hf. um vátryggingaviðskipti á grundvelli útboðs. Samningurinn er til sex ára frá 1. janúar 2001 að telja. Vátryggingarsamningurinn er heildarsamningur um tryggingar Borgarbyggðar og sjálfstæðra stofnana þess. Samningurinn felur í sér að fram fari sameiginleg úttekt og endurskoðun á vátryggingarþörf Borgarbyggðar á árinu 2001. ÍSVÁ, löggild vátryggingamiðlun, hafði umsjón með framkvæmd útboðsins …

Íbúum fjölgar í Borgarbyggð

Skv. bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands var íbúafjöldi í Borgarbyggð 2.468 þann 1. desember 2000. Hinn 1. desember 1999 voru íbúar Borgarbyggðar 2.421 og varð því fjölgun milli ára um 47 manns eða 1,9%. Fjölgunin er nokkuð yfir landsmeðaltali sem var 1,5% aukning. Íbúum í Borgarnesi fjölgaði á sama tímabili úr 1.720 í 1.740 eða um 20. Íbúafjölgun í dreifbýli verður væntanlega …

Bæjarstjóraspjall

Stærsta verkefni Borgarbyggðar á næsta ári verður stækkun Grunnskólans í Borgarnesi. Þó er ljóst að einnig þarf að fara í umtalsverða gatnagerð í Borgarnesi í samræmi við kynntar deiliskipulagstillögur. Vísbendingar eru um að framundan geti verið töluverð uppbyggingarstarfsemi í Borgarbyggð sem bæjarfélagið undirbýr sig undir að geta mætt. FjölmiðlaumræðaÞað er ljóst að umfjöllun fjölmiðla af ákveðnum svæðum eins og Borgarfjarðarhéraði …

Bæjarstjórnarfundur

Bæjarstjórn Borgarbyggðar heldur fund í fundarsalnum að Borgarbraut 11 fimmtudaginn 14. desember og hefst fundurinn kl. 16,oo. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs 2001 ( fyrri umræða ). 2. Fjárhagsáætlun Hitaveitu Borgarness 2001 ( fyrri umræða ). 3. Fjárhagsáætlun framkvæmdasjóðs 2001 ( fyrri umræða ). 4. Fjárhagsáætlun félagslegra íbúða 2001 (fyrri umræða). 5. Fundargerð bæjarstjórnar 09.11. ( 96 ). 6. Fundargerðir bæjarráðs …

Félagsleg þjónusta í sveitum Borgarbyggðar

Steinunn Ingólfsdóttir hefur f.h. félagsþjónustu Borgarbyggðar staðið fyrir könnun á þjónustuþörf aldraðra í sveitum Borgarbyggðar. Alls var spurningarlisti sendur til 53 einstaklinga, af þeim svöruðu 26 eða 49%. Því miður verður það að teljast frekar dræm þátttaka og kannski erfitt að meta þörfina út frá því. Þó má kannski gera ráð fyrir að þeir sem svöruðu ekki eru þeir sem …

Guðný J. Jóhannsdóttir ráðin vaktstjóri.

Guðný J. Jóhannsdóttir hefur verið ráðin vaktstjóri við Íþróttamiðstöðina Borgarnesi. 6 einstaklingar sóttu um stöðuna og var Guðný ráðin úr þeim hópi. Guðný hefur starfað við íþróttamiðstöðina frá árinu 1997 og gengt starfi vaktstjóra í afleysingum á sumrin.

Starf í Íþróttamiðstöðinni

Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi óskar eftir starfsmanni í fullt starf. Starfið er vaktavinna sem felst m.a. í baðvörslu í kvennaklefum, gæslu við sundlaugarmannvirki úti og inni, í íþróttahúsi auk þrifa, afgreiðslu o.fl. Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilning á íþrótta- og æskulýðsstarfi. Laun samkv. kjarasamningum SFB. Skilyrði fyrir ráðningu er að …