Dýrafangarar í Borgarbyggð

Stórgripir á vegum fara ekki vel með umferð vélknúinna farartækja. Til þess að reyna að koma í veg fyrir slys á mönnum og dýrum hefur Borgarbyggð ráðið þrjá einstaklinga til að “handsama” stórgripi sem sloppið hafa inn á vegsvæði í Borgarbyggð og tilkynnt hefur verið um til lögreglu. Til stendur að banna lausagöngu um allt sveitarfélagið en beðið er umsagnar …

Knattspyrnu- og körfuboltavellir á Bifröst

Útiaðstaða til boltaíþrótta á Bifröst hefur batnað mikið nú í sumar. Búið er að koma upp körfum á malbikuðum körfuboltavelli, auk þess sem keypt voru lítil fótboltamörk og komið fyrir á litlum gras sparkvelli. Nýr gervigrasvöllur verður svo vígður í haust, en framkvæmdir við hann standa nú yfir. Einnig er unnið að gerð nýs sparkvallar á Hvanneyri. Á myndinni eru …

Tvær skipulagsauglýsingar

Framkvæmdasvið Borgarbyggðar sendir í dag frá sér tvær skipulagsauglýsingar. Annars vegar er um að ræða breytingu á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 og hins vegar breytingu á deiliskipulagi í landi Húsafells III. Auglýsingarnar er að finna hér að neðan sem og tillögurnar sjálfar. Í báðum tilfellum rennur frestur til að skila inn athugasemdum út 30. ágúst 2007. Athygli er vakinn …

SPM gefur skortöflu

Í vikunni var sett upp ný skortafla á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Það var Sparisjóður Mýrasýslu sem gaf þessa rausnarlegu gjöf. Taflan, sem er að gerðinni Mondo, leysir af hólmi gömlu vallartöfluna sem var orðin ónýt vegna sjávarseltu. Nýja taflan er þannig uppsett að auðvelt er að taka hana niður á haustin og ætti hún því að endast lengur en sú …

Meistaramót Golfklúbbs Borgarness

Meistaramóti Golfklúbbs Borgarness lauk á Hamarsvelli á laugardaginn. Mótið hófst á miðvikudaginn og stóð því í fjóra daga í einmuna veðurblíðu. Keppt var í fjórum flokkum karla (skipt eftir forgjöf), einum flokki kvenna, öldungaflokki karla, öldungaflokki kvenna og flokki 13 ára og yngri. Þetta var fyrsta mótið sem leikið var á 18 holu Hamarsvelli og þótti það takast með miklum …

Áskorun til ríkisstjórnar Íslands

Á fundi byggðaráðs Borgarbyggðar í morgun var einróma samþykkt bókun sem hvetur ríkisstjórn Íslands til að móta nú þegar byggðastefnu sem styrkir búsetu á landsbyggðinni. Þá lýsir byggðaráðið sig reiðubúið að taka þátt í að stofna Nýsköpunarsjóð Vesturlands sem hafi það að markmiði að efla sprotastarsemi á Vesturlandi. Hér að neðan má lesa bókunina í heild sinni. “Byggðaráð Borgarbyggðar hvetur …

Tónlistanám í Borgarbyggð

Tónlistaskóli Borgarfjarðar fagnar 40 ára afmæli sínu nú í haust. Í fréttabréfi skólans, sem borið verður í hús í byrjun ágúst, er að finna allar upplýsingar um skráningu, kennara, á hvaða hljóðfæri verður kennt, kennslustaði og fleira. Vefur Borgarbyggðar “þjófstartar” og birtir þessar upplýsingar hér og nú.   Tónlistarskóli Borgarfjarðar tók til starfa haustið 1967. Fyrsta veturinn sem skólinn starfaði …

Atvinna – íþróttamiðstöðvar

Borgarbyggð auglýsir eftir starfsmönnum í íþróttamiðstöðina á Varmalandi og íþróttamiðstöðina á Kleppjárnsreykjum. Bæði störfin eru 100% störf. Störfin fela í sér umsjón og gæslu mannvirkis, baðvörslu (kvennaklefar), þrif, afgreiðslu, uppgjör, innkaup, eftirlit tækja o.fl. Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund, gott lag á börnum og unglingum, auk áhuga og skilnings á íþrótta- og æskulýðsstarfi.   Umsækjandi þarf að hafa náð …

Gæsluvöllur í Borgarnesi

Gæsluvöllurinn á Skallagrímsgötu 7 (róló) í Borgarnesi verður opinn frá og með 13. júlí til og með 10. ágúst 2007. Opið verður alla virka daga frá klukkan 13:00 – 17:00. Umsjónarkona á gæsluvellinum í sumar er Kristín Amelía Þuríðardóttir. Henni til aðstoðar verða nemendur úr Vinnuskóla Borgarbyggðar. Verð er kr. 200,- fyrir hvert skipti, en einnig er hægt að kaupa …

Staða skipulagsmála

Búið er að uppfæra lista framkvæmdasviðs Borgarbyggðar um “stöðu skipulagsmála”. Þar má sjá hvar í ferlinu verkefnin eru stödd. Listann er að finna hér.