Stjórnlagaþingskosningar í Borgarbyggð

Kosningar til stjórnlagaþings fara fram 27. nóvember n.k. Á kjörskrá í Borgarbyggð eru allir sem voru með lögheimili í sveitarfélaginu 6. nóvember s.l og uppfylla öll skilyrði laga um kosningarétt í kosningum til Alþingis sbr. lög nr. 24/2000.   Kjörstaðir í Borgarbyggð verða 6 eins og verið hefur en vakin er athygli á að ekki er sami opnunartími á öllum …

Jólatónleikar Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Miðvikudaginn 8. desember næstkomandi hefst jólatónleikaröð Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Fyrstu tónleikarnir verða í Logalandi í Reykholtsdal og hefjast þeir kl. 20.30. Nemendur Tónlistarskólans heimsækja félagsstarf eldri borgara föstudaginn 10. desember kl. 13.30. Smellið hér til að sjá auglýsingu um jólatónleikaröð Tónlistarskólans.  

“Hátíð fer að höndum ein”

Kammerkór Reykjavíkur verður með tónleika í Reykholtskirkju sunnudaginn 28. nóvember 2010 kl. 17.00. Stjórnandi er Sigurður Bragason, orgelleikari Bjarni Þ. Jónatansson. Einsöngvarar koma úr röðum kórfélaga. Á efnisskránni er íslensk og erlend kirkjutónlist sem að stórum hluta tengist jólum og aðventu.   Frumflutt verður verkið “Barnabænir” eftir Oliver Kentish og lagið “Jólanótt” eftir stjórnanda kórsins við ljóð Þorsteins Valdimarssonar, einnig …

Endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir árið 2010

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar fimmtudaginn 18. nóvember síðastliðinn var samþykkt samhljóða endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. Helstu niðurstöðutölur samstæðureiknings eru:     Heildartekjur 2.352,5 milljónir Niðurstaða án fjármagnsliða 176,4milljónir Rekstrarafgangur44,8 milljónir Framkvæmdir og fjárfestingar 23,5 milljónir Veltufé frá rekstri 194, 3 milljónir Niðurstaða endurskoðaðrar áætlunar er nokkru betri en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. Helstu ástæður þess eru hærri tekjur …

Hjálmaklettur skal það heita

Mennta- og menningarhátíðin, Menntun og skemmtun, fór fram í menningarhúsinu í Borgarnesi á laugardaginn. Borgarbyggð keypti húsið síðastliðinn föstudag af Íslandsbanka. Efnt var til samkeppni um nafn á húsið og hlaut það nafnið Hjálmaklettur eftir tillögu Guðrúnar Jónsdóttur í Borgarnesi. Alls bárust tillögur frá 15 aðilum sem lögðu til 39 nöfn. Dagskráin var þéttskipuð og margir fróðlegir fyrirlestrar fluttir auk …

Eruð þið búin að Bach-a fyrir jólin?

Fréttatilkynning Tónlistarfélag Borgarfjarðar býður til dagskrár í tali og tónum í aðdraganda aðventu. Um árabil hefur Tónlistarfélag Borgarfjarðar efnt til tónleika við upphaf aðventu í samvinnu við Reykholtskirkju og Borgarfjarðarprófastsdæmi. Dagskráin, sem ber yfirskriftina „Eruð þið búin að Bach-a fyrir jólin?“ verður með nokkuð óvenjulegu sniði að þessu sinni. Tómas Guðni Eggertsson orgelleikari leikur sálmforleiki eftir J.S. Bach á hið …

Kjörskrá vegna stjórnlagaþings

Kjörskrá Borgarbyggðar vegna stjórnlagaþingskosninganna 27. nóvember n.k. liggur frammi á skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá 17. nóvember til kjördags.  

Menntun og skemmtun á laugardaginn

Mennta- og menningarhátíð verður haldin í Menntaskóla Borgarfjarðar á morgun laugardag á milli kl. 13 og 17. Á hátíðinni er að finna glæsilegt úrval atriða úr héraðinu þar sem menntun og menning eru í fyrirrúmi. Sjá má dagskrána hér með fyrirvara um breytingar.  

Æskulýðsballið tókst vel

Árlegt Æskulýðsball fór fram í menningarhúsi Borgarbyggðar s.l. fimmtudag. Þetta var í 18. skipti sem félagsmiðstöðin Óðal stendur fyrir dansleik fyrir unglinga af öllu Vesturlandi og víðar í tengslum við forvarnadaga.   Að þessu sinni mættu um 400 unglingar á svæðið og skemmtu sér hið besta en ekki eitt agabrot kom upp á þessum glæsilega dansleik og skemmtu sér allir …

Söfnun á rúlluplasti frestað

Söfnun sem vera átti á rúlluplasti dagana 29. október til 8. nóvember síðastliðinn féll af óviðráðanlegum orsökum niður. Mjög bráðlega verður þó farið í söfnun á rúlluplasti og verður hún auglýst nánar þegar dagsetning liggur fyrir.