Nýjárskveðja

  Sveitarstjórn og starfsfólk Borgarbyggðar senda íbúum Borgarbyggðar og landsmönnum öllum bestu óskir um gleði og gæfuríkt nýtt ár og þakkar góð samskipti á liðnu ári.  

Mannamyndir í Safnahúsi

  Í Safnahúsi hefur verið sett upp ný sýning, í þetta sinn á mannamyndum eftir ýmsa listamenn. Myndunum er stillt upp í anddyri bókasafnsins. Þær eru valdar af handahófi úr safnkosti Listasafns Borgarness, en stærstur hluti þess er upphaflega kominn til sem rausnargjöf Hallsteins Sveinssonar til Borgnesinga árið 1971.  

Lokaskýrslur til Menningarsjóðs Borgarbyggðar

Snemma árs veitti Menningarsjóður Borgarbyggðar styrki fyrir árið 2012 til menningarverkefna í Borgarbyggð. Samkvæmt reglum sjóðsins ber styrkhöfum að skila inn skýrslu um verkefni sín fyrir árslok. Þeir styrkhafar sem ekki hafa sent inn eru hér með minntir á að senda skýrslur sínar til Emblu Guðmundsdóttur þjónustufulltrúa, skrifstofu Borgarbyggðar, 320 Reykholt sem allra fyrst eða í síðasta lagi 15. janúar. …

Gleðileg jól

Sveitarstjórn og starfsfólk Borgarbyggðar óska íbúum sveitarfélagsins og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.  

Opnunartími í íþróttamannvirkjum Borgarbyggðar um jól og áramót

Um jól og áramót verður opið í íþróttamannvirkjum Borgarbyggðar sem hér segir:   Sundlaugin í Borgarnesi 23. des. Þorláksmessa, opið kl. 9 – 18 24. des. Aðfangadagur, opið kl. 9 – 12 Lifandi tónlist á milli kl. 10 -11 25. des. Jóladagur, lokað 26. des. Annar í jólum lokað 31. des. Gamlársdag, opið kl. 9 – 12 1. janúar Nýársdagur, …

Frá Slökkviliði Borgarbyggðar

Nú er sá árstími þegar hvað mest er hættan á eldsvoða vegna kertaljósa og skreytinga. Slökkvilið Borgarbyggðar vill vekja athygli á nokkrum atriðum: * Hefur þú athugað virkni reykskynjarans nýlega? Og skipt um rafhlöðu nú fyrir jólin? * Ertu með eldvarnateppi í eldhúsinu þínu? * Sýnið aðgát við meðferð, umbúnað og staðsetningu kertaskreytinga. * Ofhlaðið ekki fjöltengi. * Fargið gömlum …

Fréttablaðskassar teknir niður

Fréttablaðskassar sem er að finna í Borgarnesi, verða teknir niður 27/28. desember. Þetta er gert vegna aukinnar hættu á skemmdum um áramótin. Kassarnir verða aftur settir upp á nýju ári. Auglýst verður í Fréttablaðinu hvar hægt verður að nálgast blaðið þá daga sem kassarnir verða ekki uppi.  

Koma jól yfir borg og bæ – Jólatónleikar fjölskyldunnar

Miðvikudaginn 19. desember nk kl. 20:30 halda hjónin Theodóra Þorsteinsdóttir og Olgeir Helgi Ragnarsson ásamt dætrunum Sigríði Ástu og Hönnu Ágústu tónleika í Borgarneskirkju. Meðleik á píanó annast Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Aðgangur verður ókeypis og allir velkomnir. Theodóra er skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar, söngkennari og söngkona. Hún stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík og í Vínarborg og hefur víða komið fram sem …

Aðventurölt í gamla miðbænum

Næstkomandi miðvikudagskvöld bjóða ýmis fyrirtæki í gamla miðbæ Borgarness heim og verða með ýmis tilboð í tilefni aðventu. Safnahús tekur dyggilega þátt með aukaopnun bókasafnsins frá 19-22 þetta kvöld auk þess sem myndlistarkonurnar Jóhanna Stefánsdóttir og Björk Jóhannsdóttir verða á vaktinni á sýningu sinni. Um aðventutilboðin má lesa hér fyrir neðan. Egils Guesthose verður með opið hús og er heitt …