Að afloknu Unglingalandsmóti

Byggðarráð Borgarbyggðar bókaði eftirfarandi á 384. fundi sínum í gær, fimmtudaginn 4. ágúst. “Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir yfir ánægju sinni með vel heppnað Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið var í Borgarnesi dagana 28. – 31. júlí sl. Samstarf Borgarbyggðar við UMFÍ og UMSB við undirbúning og framkvæmd mótsins var eins gott og hugsast gat. Ungmennafélagshreyfingunni eru því færðar þakkir fyrir gott og …

Strætó / Fréttatilkynning vetraráætlun höfuðborgarsvæðið og landsbyggðin.

Vetraráætlun Strætó 2016 hefst eftirtalda daga Höfuðborgarsvæðið: 14. ágúst Suðurnes: 14. ágúst Norður- og Norðausturlandi: 28. ágúst Vestur- og Norðurlandi: 11. september Suðurland: 11. september Nánari upplýsingar um breytingarnar er að finna á Strætó.is. Ef óskað er nánari upplýsinga um leiðabreytingar Strætó þá er Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri,  talsmaður fyrirtækisins. Netfangið hans er johannesru@straeto.is og síminn er 660 1488.

Nýr bæklingur og gönguleiðakort um Einkunnir

Út er kominn nýr bæklingur um fólkvanginn Einkunnir. Í honum er að finna upplýsingar um tilurð fólkvangsins, einkenni hans, skipulag og nýtingu. Á bakhliðinni er kort af svæðinu ásamt gönguleiðakorti. Bæklinginn er hægt að nálgast í ráðhúsinu  og á upplýsingamiðstöðvum. EINKUNNIR.minniupplausn

Unglingalandsmót UMFÍ 2016

Unglingalandsmót UMFÍ, það 19. í röðinni,  hófst í dag með keppni í golfi og körfubolta. Á morgun föstudag hefst keppni í öðrum greinum en alls er keppt í 14 greinum auk þess sem fjölbreytt afþreyingardagskrá er í boði fyrir alla fjölskylduna.  Mótið verður formlega sett á Skallagrímsvelli kl. 20.00 á föstudagskvöld. Unnið hefur verið að undirbúningi um nokkurt skeið með …

Fullt af tækifærum í Borgarbyggð

Hjá Borgarbyggð er verið að auglýsa eftir fólki í nokkur laus störf, nánar er hægt að kynna sér laus störf hjá Borgarbyggð með því að smella hér.

Laust starf við Grunnskóla Borgarfjarðar

Vegna óvæntra forfalla vantar grunnskólakennara við Grunnskóla Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjum næsta vetur. Kennslugreinar: • textílmennt, • íslenska og samfélagsgreinar á miðstig Umsóknarfrestur er til 25.júlí. Allar upplýsingar veitir Ingibjörg Adda Konráðsdóttir í síma 8401520 eða í netfangi ingibjorg.adda.konradsdottir@gbf.is

Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Borgarnesi.

Dagana 28. – 31. júlí n.k. verður Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Borgarnesi. Það er ánægjuefni að Borgarnes skuli enn einu sinni vera vettvangur fyrir þessa glæsilegu fjölskylduhátíð. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt og sannað að mikill fjöldi keppenda, aðstandenda þeirra og annars áhugafólks mun sækja Borgarnes heim á meðan á unglingalandsmótinu stendur. Í þessu sambandi er það metnaðarmál okkar allra …

Skógarkerfill

Skógarkerfill er ágeng tegund sem hefur sótt í sig veðrið á Suðvesturlandi undanfarin ár. Merkja má aukningu í útbreiðslu skógarkerfils í Borgarbyggð og þekkt er að kerfillinn getur á skömmum tíma orðið að illgresi, þ.e. dreifst og vaxið þar sem fólk kærir sig ekki um. Þrjár leiðir hafa einkum verið notaðar í baráttunni við kerfilinn; beit, sláttur og úðun. Vitað …

Hvanneyrarhátíð 2016

Efnt verður til árlegrar Hvanneyrarhátíðar laugardaginn 9. júlí. Dagskráin er glæsileg og er hún hér meðfylgjandi. smelltu á myndina til að sjá skýrar.< /center>

Brákarhátíð 2016

Brákarhátíð 2016 var haldin hátíðleg um síðustu helgi og var margt á dagskrá. Hverfaskreytingar og götugrill á föstudag, skemmtun í Skallagrímsgarði, kvöldvaka í Englendingavík og fl. á dagskrá á laugardag, ásamt dansleik í Hjálmakletti. Sjá má myndir og fleira á facebook síðu Brákarhátíðar.