Rósa Marinósdóttir sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu

Rósa Marinósdóttir hjúkrunarfræðingur var sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag. Hún hlaut þessa virðingarverðu viðurkenninguna fyrir óeigingjarnt sjálfboðastarf í þágu íþróttaiðkunar ungs fólks um allt land og mikilvægt framlag til samfélagsmála í heimabyggð. Rósa hefur starfað sem sjálfboðaliði undir merkjum Ungmennafélagsins Íslendings og Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) frá árinu 1980. Framlag Rósu til félags- og …

Rafræn endurvinnslukort fyrir Gámastöðina í Sólbakka

Vegna tæknilegra örðuleika er ekki hægt að afhenda rafrænklippikort vegna gámstöðvar til þeirra sem ekki hafa þegar sótt sitt kort. Unnið er að lausn á málinu og við munum uppfæra stöðuna um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Uppfærsla á klippikortum vegna gámastöðvar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd lagði til breytingar á klippikortum vegna notkunar gámastöðvar sveitarfélagsins, sem voru samþykktar í sveitarstjórn í desember síðastliðnum. Samkvæmt samþykktinni verða klipp fyrir árið 2026 alls 32 talsins. Hvert klipp samsvarar 0,25 rúmmetrum og munu klippikortin gilda til og með 1. febrúar 2027. Fasteignareigendur sem áður hafa sótt kort þurfa að fara inn á Borgarkort.is, skrá sig inn, …

Rafmagnslaust verður á Mýrum þann 23.9.2025 frá kl 13:00 til kl 16:00

Rafmagnslaust verður á Mýrum þann 23.9.2025 frá kl 13:00 til kl 16:00 vegna vinnu við dreifikerfið. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 5289000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Fjárréttir í Borgarbyggð 2025

Réttir haustsins í Borgarbyggð – Tímasetningar   Haustið er komið og með því hefðbundnar fjárréttir víðsvegar um Borgarbyggð. Réttirnar eru ekki aðeins mikilvægur þáttur í búskap heldur einnig menningarlegur viðburður þar sem fólk kemur saman, rifjar upp gömul kynni og nýtur samveru. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir helstu réttir í sveitarfélaginu í september og október:  Réttir í Borgarbyggð 2025  …

Sumarlokun Ráðhúss Borgarbyggðar 2025

Vegna sumarleyfa verður Ráðhús Borgarbyggðar lokað frá 21. júlí til og með 4. ágúst nk. Ef erindið getur ekki beðið má á þessum tíma senda tölvupóst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is Einhver röskun getur orðið á útgáfu reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 …

Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2025

Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2025 Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir. Markmiðið er að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og efla samkennd í samfélaginu. Nú er opið fyrir tilnefningar í eftirfarandi fimm flokka:   Snyrtilegt bændabýli Falleg lóð við íbúðarhús Snyrtileg atvinnulóð Samfélagsviðurkenning …

Tilkynning vegna gatnaframkvæmda við Sæunnargötu.

Tilkynning vegna gatnaframkvæmda Vegna malbikunarframkvæmda við Sæunnargötu verður götulokun mánudaginn 14. júlí. Við biðjum vegfarendur velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Vinsamlegast sýnið aðgæslu á svæðinu meðan á framkvæmdum stendur.

Frestun á söfnun rúlluplasts.

Frestun á söfnun rúlluplasts Söfnun rúlluplasts, sem samkvæmt sorphirðudagatali átti að fara fram í júlí, verður ekki framkvæmd að þessu sinni. Á fundi Umhverfis- og landbúnaðarnefndar þann 3. júní var tekin ákvörðun um að fresta söfnuninni. Jafnframt var starfsmanni sveitarfélagsins falið að kanna möguleika á hagkvæmari lausn fyrir framkvæmd hennar. Nefndin mun taka ákvörðun um framhald málsins á næsta fundi …