Tónleikar í Reykholtskirkju

febrúar 17, 2009
Kammerkórinn Staka
Hinn “næstum” íslenski kór Staka mun halda tónleika í Reykholtskirkju þann 22. febrúar kl.16.00.
Staka er ungur kammerkór sem starfar í Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir ungan aldur hefur kórinn sungið víða og fengið mikið lof fyrir. Meðlimir Stöku hafa flestir einhverja tónlistarmenntun og kórreynslu sér að baki.
 
Staka hefur það að markmiði að kynna íslenska tónlist erlendis, en á tónleikunum í Reykholti munu þau snúa blaðinu við og flytja einvörðungu danska kórtónlist. Á efnisskránni eru verk eftir Niels W. Gade, Carl Nielsen, Per Nørgård, Vagn Holmboe, Jørgen Jersild, Bent Sørensen o.fl.
Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr.
Stjórnandi Stöku er tónskáldið Stefán Arason.”
 
 

Share: