Laust starf innheimtufulltrúa

september 9, 2022
Featured image for “Laust starf innheimtufulltrúa”

Borgarbyggð óskar eftir að ráða innheimtufulltrúa á fjár­málasvið í 100% starf.

Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli. Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Í starfsmannamálum eru gildin virðing, áreiðanleiki og metnaður höfð að leiðarljósi.

Innheimtufulltrúi ber ábyrgð á útgáfu reikninga og innheimtu sveitarfélagsins og stofnana þess. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að sinna verkefnum innheimtufulltrúa sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið í gegnum Alfreð – starfasíðu Borgarbyggðar:


Share: