Laus störf í félagslegri liðveislu

ágúst 31, 2022
Featured image for “Laus störf í félagslegri liðveislu”

Fjölskyldusvið Borgarbyggðar óskar eftir starfsfólki í félagslega liðveislu í Borgarbyggð.

Markmið liðveislu er fyrst og fremst að veita aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og njóta tómstunda utan heimilis. Einnig að efla einstaklinga til sjálfshjálpar og veita persónulegan stuðning.

Hver einstaklingur sem á rétt á liðveislu á fær u.þ.b. 16 klst. á mánuði sem eru útfærðar í samráði við liðveitanda. Hver liðveitandi getur sinnt 1- 3 einstaklingum í einu og þetta því kjörið starf fyrir námsfólk eldra en 18 ára en um tímavinnu er að ræða.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið í gegnum Alfreð – starfasíðu borgarbyggðar:


Share: